Gleymt lykilorð
Nýskráning
Fræði

Ofurhugar

DutyCalls DutyCalls 1.176 stig
STAVKA STAVKA 1.098 stig
gthth gthth 1.038 stig
ritter ritter 576 stig
Fimbulfamb Fimbulfamb 434 stig
VeryMuch VeryMuch 402 stig
br75 br75 316 stig

Stjórnendur

Trivia (7 álit)

Trivia Fyrst að Stalin kláraðist svona fljótt, þá kemur ein aðeins erfiðari.

Smá trivia (5 álit)

Smá trivia Ætti ekki að vera svo erfið held ég.

Illar þóttu gjafir Reagans (10 álit)

Illar þóttu gjafir Reagans Sígarettuauglýsingar eru í dag ýmist bannaðar eða háðar ströngum reglugerðum víðast hvar á vesturlöndum. Og nokkuð klárt er að engu frægðarfólki sem annt er um mannorð sitt myndi detta í hug að auglýsa sígarettur.

Þetta var þó ekki alltaf svo. Hér er einn af góðkunningjum söguáhugamanna að tjá sig um ágæti Chesterfield-vindlinga. And-reykingamenn þess tíma (sem voru mun færri en í dag) mun víst hafa hryllt við tilhugsuninni um hverslags jólagjafir óvinir hans fengju, fyrst vinir hans fengu þetta! :)

Og þessi heitir? (8 álit)

Og þessi heitir? Við eigum flest þessum manni eitthvað að launa. Hvað heitir hann og hvað gerði hann svo merkilegt?

Marcus Aurelius (1 álit)

Marcus Aurelius Merkilegur kjeppz ;*

Deutsches Reich (7 álit)

Deutsches Reich Hér má sjá þýskt kort frá stríðsárunum, líklega frá 1942 en ártalið kemur ekki fram. Kortið sýnir veldi Þjóðverja og Ítala í Evrópu og Japana í Asíu.

Það er athyglisvert að allir sem gera svona stríðskort hafa alltaf óvininn í svörtum lit, í flestum þýskum fréttamyndum frá 1939 er Pólland sýnt í svörtum lit og sama gildir um fréttamyndir frá Bandaríkjunum þar sem Þýskaland er svart.

Þessa mynd fann ég í gríðarstóru þýsku littmyndasafni frá stríðsárunum sem ég mæli með að þeir skoði sem áhuga hafa.

http://saturnic.livejournal.com/174828.html

ATH: Eins og sést á myndin að snúa hins vegin, ég þurfti að leggja hana lárétt til að hún kæmist hingað inn. Upprunalegu myndina í stærri upplausn og lárétt má nálgast hér: http://www.fuckthemeat.com/foto2/naziincolor1/19.jpg

MG-42 (12 álit)

MG-42 Hér sést þýskur hermaður (úr Waffen-SS, sýnist mér) munda þetta fræga vopn einhverntíman í Seinni heimsstyrjöld.

Þessi byssa varð eitt af frægustu vopnum Þjóðverja. Hún var ákaflega hraðvirk og gaf frá sér sérkennilegt hljóð sem vakti hroll í hermönnum andstæðinga. Þótti það helst minna á hljóðið þegar strigi er rifinn.

Þetta þótti svo góð byssa að þýski herinn (og fleiri) eru enn að nota lítið endurbætta útgáfu í dag.

Aðeins meira má lesa um þetta skotvopn og fleiri á http://listverse.com/2009/10/07/top-10-greatest-firearms-in-history/

Trivia í millivigt (11 álit)

Trivia í millivigt Það leynir sér tæpast að hér er bandarískur hershöfðingi á ferð, en veit einhver hvað hann hét og hvað hann vann sér til frægðar?

Jörðin og tunglið (7 álit)

Jörðin og tunglið Þessi mynd var tekinn þann 3. október árið 2007 af gervitunglinu ‘Mars Reconnaissance Orbiter’, með HiRISE myndavélinni, sem samkvæmt heimildum af Wiki er sú stærsta sem við höfum sent út í geim.

Getið lesið meira um þetta hér. Ég hef ekki hugmynd hvort ég sé að segja ykkur sannleikan eða einhverja tóma vitleysu! :)

Draumalandið (8 álit)

Draumalandið Bók þessi er eftir Andra Snæ Magnason og fjallar um íslenskt sálarlíf fortíðar og framtíðar. Ég mæli með henni fyrir alla sem vilja rifja upp góðærið og hvernig sú hugsun hefur ávallt frá upphafi verið föst í okkur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok