Jón Sigurðsson forseti var fæddur 17. júní 1811 og lést 7. desember 1879. Jón var föðurlandsvinur eins og þeir gerast bestir og setti hagsmuni og velferð íslensku þjóðarinnar í algeran forgang fram yfir allt annað. Á minningarsíðu Jóns á www.hrafnseyri.is segir m.a.: “Jón Sigurðsson var tímamótamaður í Íslandssögunni. Ættum við ekki að sameinast í því að halda nafni hans á lofti?” Ég get tekið fullkomlega undir þessi orð og ekki síður þessi: “Við ættum ekki aðeins að sameinast í að halda nafni hans á lofti heldur og í að halda á lofti því sem hann gerði fyrir Ísland og íslensku þjóðina og standa vörð um það.”
Jónas frá Hriflu, líklega áhrifamesti stjórnmálamaður síðustu aldar. Hann átti hlut að stofnun Alþýðuflokks, Framsóknarflokks og ASÍ. Hann var líka dóms- og menntamálaráðherra 1927-1931.
Pétur Blöndal er öllum að óvörum orðinn besti vinur litla mannsins. Hann er eini þingmaðurinn sem neitaði að svíkja sannfæringu sína í einu bjánalegasta máli síðari ára.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..