Gleymt lykilorð
Nýskráning
Sagnfræði

Sagnfræði

4.208 eru með Sagnfræði sem áhugamál
17.290 stig
708 greinar
845 þræðir
44 tilkynningar
3 pistlar
890 myndir
388 kannanir
27.169 álit
Meira

Ofurhugar

DutyCalls DutyCalls 1.156 stig
STAVKA STAVKA 1.090 stig
ritter ritter 576 stig
br75 br75 266 stig
Rembrandt Rembrandt 206 stig
ornbj ornbj 192 stig
MooMoo MooMoo 162 stig

Stjórnendur

Norman Schwarzkopf (3 álit)

Norman Schwarzkopf Norman Schwarzkopf, fæddur 22. Ágúst 1934,
fór í tvær herferðir til Víetnam, 1965-66 og 1969-70. Hann kleif metorðastigan innan bandaríska hersinns og varð á endanum fjögura stjörnu hershöfðingi. Hann var Yfirhershöfðingi yfir “Operation Desert Storm” Þar sem hann náði völdum á Kuwait með minniháttar mannfalli. Hann hætti störfum 1992.

Boris Jeltsín (6 álit)

Boris Jeltsín Þann 23.apríl síðasliðinn lést Boris Jeltsín (1931-2007) fyrsti forseti Lýðveldisins Rússlands og heyrir hann nú sögunni til.

Það var vissulega erfitt verkefni að stjórna landinu beint eftir hrun Sovétríkjanna enda í kostar það sitt að breyta frá kommúnisma í kapítalisma á einu augnabliki. Í valdatíð hans fór fram stórkostlegur þjófnaður ríkiseigna, sem vinir hans og bandamenn sölsuðu undir sig auk þess sem lýðræðisþróun í Rússlandi hefur ekki verið neitt til að hrópa húrra fyrir.

Eins og fyrirrennari hans Gorsbasjev sagði við lát hans: “Ég votta mína dýpstu samúð fjölskyldu þessa manns en á herðum hans hvíla margar góðar dyggðir og stórkosleg mistök….”

En hann hefur vissulega skrifað sig á spjöld sögunnar.

Trivía (8 álit)

Trivía Kanski svolítið erfið trivía, vonandi nær einhver að svara rétt.

Vísbending: hann var konungur.

Riddari himnanna ? (4 álit)

Riddari himnanna ? Nei, þetta er ekki eitthvað úr hugarheimi Tolkiens eða slíkra höfunda. Þetta er riddari úr her Pólsk-Litháíska samveldisins sem við lýði var á 16-17. öld. Þeir skreyttu sig með arnarvængjum og blettatígraskinnum, og skutu þannig óvinum sínum skelk í bringu.

Pólverjar þóttu síðan eiga eitt besta riddaralið heims, og margsönnuðu það gegn ýmsum andstæðingum á næstu öldum. Enda voru þeir mjög stoltir af riddurum sínum.

Í Seinni heimsstyrjöldinni beið riddaraliðið afhroð gegn betur búnum Þjóðverjum, en þó mun það vera rangt sem oft er haldið fram, að þeir hafi barist heimskulega t.d. með riddaraáhlaupum á skriðdreka - Þeir höfðu fylgst betur með tímanum en svo, og notuðu betri taktík. En urðu samt að láta undan ofureflinu.

Margaret Thatcher framan á forsíðu Time (28 álit)

Margaret Thatcher framan á forsíðu Time “Britains Fighting Lady” var hún kölluð - sennilega útaf Falklandseyja stríðinu gegn Argentínumönnum.

En Margaret Thatcher var forsætisráðherra Breta á meðan því stríði stóð.

Beirút 1983 (4 álit)

Beirút 1983 Enn ein gömul TIME fosrsíða til að drepa tímann ;)

Líbanon hefur nú í yfir þrjá áratugi verið einn af ófriðsælustu stöðum heims. Þar hófst blóðugt borgarastríð árið 1974, og ekki batnaði ástandið neitt þegar Ísraelsher gerði innrás 1982. Sameinuðu Þjóðirnar reyndu sitt besta til að stilla til friðar, og var fjölþjóðlegt friðargæslulið sent á svæðið.

23. október 1983 var gert sprengjutilræði við bækistöðvar Bandaríska landgönguliðsins (US Marines), sem kostaði yfir 300 manns lífið, mest landgönguliða. Var þá Bandaríkjamönnum undir forystu Reagans forseta nóg boðið. Restinni af liðinu var forðað útá sjó, og svo loks kallað heim innan nokkura mánaða.

http://en.wikipedia.org/wiki/1983_Beirut_barracks_bombing

Auðvelt Trivia (16 álit)

Auðvelt Trivia Ég spyr hver er maðurinn?

Volkswagen (21 álit)

Volkswagen Adolf Hitler, Göring og félagar skoða hina nýsköpuðu Volkswagen bjöllu sem átti eftir að tröllríða heiminum. Nasistar sögðu að fólk þyrfti aðeins að spara fimm ríkismörk á viku til að geta eignast þennan litla bíl.

Nú veit ég ekki hvort það er satt en einhversstaðar heyrði ég að Hitler sjálfur hafi átt fyrstu hugmyndina af bjölluni á sínum tíma.

En það er vissulega skrýtin staðreynd að pæla í að þessi nútímarisafyrirtæki sem við höfum fyrir augunum allan daginn, Volkswagen, BMW, Benz og fleira tóku stórt stökk á stríðsárunum, enda þurftu þau ekki að borga verkamönnunum laun, verkamennirnir voru að berjast á vígstöðvunum og í stað þeirra sá Sauckel þeim fyrir nóg af Rússum, Hvítrússum, Úkraínubúum, og fleira fólki af slíkum uppruna til að búa til bjöllurnar sem fólkið keyrði.

Golda Meir (10 álit)

Golda Meir Hvað svo sem mönnum finnst um Zíonisma og/eða Ísraelsríki, er ekki hægt að neita því að hér var hörkukelling á ferð. Golda var Zíonisti (og jafnframt Sósíalisti) allt frá barnæsku. Í útliti, talsmáta og háttum erkitýpískur Austur-Evrópu Gyðingur – og stolt af því.

Eins og margir af hennar þjóðflokki, fluttist hún barnung með fjölskyldu sinni til Bandaríkjanna, og síðan til Palestínu árið 1921. Þar var hún alla tíð mjög virk í hinum harkalegu stjórmálum, og árið 1969 varð hún forsætisráðherra Ísraels. Ríkisstjórn hennar varð fyrir mjög harðri gagnrýni í kjölfar ófaranna í Yom Kippur stríðinu 1973 og varð í kjölfarið að segja af sér.

Golda hafði þó löngu áunnið sér sess sem einn helsti “kvenskörungur” sögunnar, dáð eða hötuð – en ávallt virt - jafnt og Indira Gandhi eða Margaret Thatcher.

http://en.wikipedia.org/wiki/Golda_Meir

Í dag er síðan sagt að breyttir tímar hafi runnið upp í þessum efnum. En t.d. Frakkland og auðvitað Bandaríkin eiga þó enn eftir að fá raunverulegan kven-þjóðhöfðingja. Það skyldi þó ekki standa til bóta á næstunni? ;)

? (9 álit)

? Hver er maðurinn?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok