Gleymt lykilorð
Nýskráning
Sagnfræði

Sagnfræði

4.208 eru með Sagnfræði sem áhugamál
17.290 stig
708 greinar
845 þræðir
44 tilkynningar
3 pistlar
890 myndir
388 kannanir
27.169 álit
Meira

Ofurhugar

DutyCalls DutyCalls 1.156 stig
STAVKA STAVKA 1.090 stig
ritter ritter 576 stig
br75 br75 266 stig
Rembrandt Rembrandt 206 stig
ornbj ornbj 192 stig
MooMoo MooMoo 162 stig

Stjórnendur

Babels turninn (15 álit)

Babels turninn Gríðarlega flott mynd eftir einn uppáhalds listamanninn minn. Gustaf Doré.

grunnur allra tungumála?
Hvað segja sagnfræðingar um þann möguleika?

Gamal Abdel Nasser (5 álit)

Gamal Abdel Nasser Gamal Abdel Nasser - Einn af leiðtogum Egyptalands á 20. öldinni:

Arabíska lýðveldi Egyptalands var eitt sinn stórt og mikið veldi sem stofnað var einhverntíman um 3200 fyrir Krist. Landið er staðsett norður í Afríku og liggur á bökkum Nílar. Landið er þekkt fyrir sína stóru pýramída sem og sína miklu siðmenningu. Talið er að Narmer konungur stjórnaði landinu fyrst og var það í traustum höndum allt næstu þrjá árþúsundi, en missti það þó sjálfstæði sitt oft og mörgum sinnum, þ.á.m. til Rómverja, Grikki, Persa og nú síðast til Breta. Landið fékk svo loks sjálfstæði sitt aftur árið 1922 og komandi ár var þjóðþingið stofnað. Árið 1923 var svo stjórnarskráin skráð en var það í höndum Saad Zaghlul að sjá eftir þeirri skrift. Strax var Egyptaland farið að herma eftir nokkrum Evrópu þjóðum með að stofa einhverskonar frjálslyndaflokk, en var það fljótt skotið niður af Bretum, sem höfðu enn smá að segja um hvernig landinu ætti að vera háttað - en leiddi það til mikinn óstöðugleika í stjórn Egyptalands. Var það svo ekki fyrr en árið 1952 þar sem hernaðar valdarán eitt var framkvæmt og Farouk I konungur steyptur stóli, en ránið var lengi í undirbúningi.

18. júní 1953 var Muhammad Naguib hershöfðingi skipaður fyrsti forseti landsins en rúmu ári seinna var hann þvingaður til að segja af störfum vegna þess að Gamal Abdel Nasser (stjórnandi valdaránsins árið 1952) hafði framið enn eitt valdarán. Skipaði hann sjálfum sér forseta stólinn en þó með ágætis viðbrögðum almennings. Hans lífsmarkmið var að reyna að sameina Egyptaland og Sýrland en var áætlunni ekki framfylgt vegna dauða hans árið 1967. Sá sem tók við af honum hét Anwar Sadat og var fyrsta verkefni hans að skipta um megin bandalagsvin, þ.e.a.s. frá Sovétmönnum til Bandaríkjamanna. Svo árið 1973, ásamt Sýrlandi, skutu þeir óvænta árás á Ísrael og þó það sé mikið deilt um hver bar sigur af hólmi, er flestir á því að Egytar unnu mikinn póltískan sigur. Með Bandaríkin og Sovétríkin þjarmandi á þeim, var vopnahlé fengið og árið 1977 gerðist sögulegur atburður þar sem Sadat heimsótti Ísrael sem leiddi til friðasamninga komdandi ár. Sadat var mjög umdeilanlegur og m.a. var landið hans rekið úr ‘bandalagi Araba’ (samþykktir aftur árið 1989) og segja margir að það sé megin orsök þess að hann var ráðinn af dögum. Arftaki og núverandi stjórnandi heitir Hosni Mubarak.

Abraham lincoln (12 álit)

Abraham lincoln Abraham lincoln var skotinn árið 1865.

Mahatma Gandhi (9 álit)

Mahatma Gandhi Þjóðþekktur Indverji.

Stríðsfíkn Bandaríkjanna (10 álit)

Stríðsfíkn Bandaríkjanna Hér er nú aldeilis eitthvað fyrir alla þá sem hata bandaríska utanríkisstefnu, eða bara Bandaríkin yfirleitt ;)

Þetta er síða úr teiknimyndabókinni “Addicted to War”. Ljósmyndin þarna af stóra luralega kananum og hinni smávöxnu víetnömsku stúlku sem tekur hann til fanga er fræg - þótti ákaflega táknræn fyrir stríðið og var óspart notuð í áróðri vinstrimanna um allan heim.


Hægt er að skoða bókina frá byrjun á http://www.addictedtowar.com/atw1a.html

Landamærabreytingar Þýskalands (14 álit)

Landamærabreytingar Þýskalands Hér sést hversu stór hluti Þýskra grunn-svæða hefur fallið til annarra ríkja á árunum 1918-45. Í dag er Þýskaland aðeins rétt meira en helmingurinn af því sem það var og þar vantar meginhluta Prússlands sem var leiðandi þýsku konungdæmanna er þau voru sameinuð árið 1871. Þökk sé hinum ósanngjörnu friðarsamningum og gamaldags refsiaðgerðum eru margar alþýskar borgir pólskar, en Pólverjar hafa aldrei unnið Þjóðverja í stríði.

Árið 1919 fluttu þúsundir þjóðverja undan þessum fáránlegu samningum, sumir urðu eftir í Póllandi og biðu “frelsun” Foringjans og eftir 1945 voru margir Þjóðverjar skipulega reknir yfir til A-Þýskalands. Í dag búa aðeins 152.897 Þjóðverjar í meginhluta hins upprunalega Prússlands.

John H. "Doc" Holliday (5 álit)

John H. "Doc" Holliday John H. “Doc” Holliday

Sovésk stuðningsmynd (7 álit)

Sovésk stuðningsmynd Já.. plakat frá Víetnam stríðinu þar sem Sóvetmenn segja:

“We are with you, Vietnam!”

Paula Hitler (4 álit)

Paula Hitler Gröf Paulu Hitler, eina alsystkinis Hitlers sem óx úr grasi, í Þýskalandi.
Paula dó árið 1960, 64 ára gömul.
Hún gekk undir nafninu Paula Wolf að ósk bróður síns eftir að hafa verið rekin 1930 þegar vinnurekendur hennar komust að því að hún væri bróðir Adolfs.
Það er ýmislegt sem bendir til þess að hún hafi deilt sterkum þjóðernisskoðunum bróður síns en hún sagðist ekki getað trúað því að bróður sinn væri ábyrgur fyrir Helförinni.
Hún bjó í Vín í nokkur ár áður en hún flutti til Berchtesgarden í Þýskalandi undir nafninu Paula Wolf og bjó þar til dauðdaga síns.

Frjálsdómur (7 álit)

Frjálsdómur Þegar bandarísk-sovéska áróðursstríðið stóð sem hæst mataði Bandaríska ríkisstjórnin þegna sína af áróðri um þrælasamfélag kommúnismans í Sovétríkjunum. Sovétmenn voru heldur ekki barnanna bestir og hér má sjá Sovésku túlkunina á hinu víðfræga frelsi og jafnrétti sem Bandaríkin höfðu til þessa gefið sig út fyrir að standa fyrir.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok