Hér er texti sem ég sleppti úr nýjustu grein minni, þar sem hann féll ekki alveg að efni hennar. Samt synd að hafa skrifað þennan texta til einskis, og læt ég hann því fljóta með þessari mynd. Myndin er af Custer (á hestbaki) ásamt liðsmönnum og “indíánaskátum” sínum skömmu fyrir bardagann örlagaríka 25. júní 1876.
Ein af sögulega vafasömustu myndum sem út kom á þessum tíma (um 1940) var They Died With Their Boots On. Hér var sjarmatröllið ástralska Errol Flynn í hlutverki George Armstrong Custer, “indíánabanans” alræmda. Custer fór fyrir “7th Cavalry” Bandaríkjahers, sem á árunum eftir Borgarastríðið hafði það hlutverk helst að stunda það sem í dag er kallað þjóðernishreinsanir. Indíánaþjóðflokkar sem í vegi voru fyrir útbreiðslu Bandaríkjanna til vesturs, voru miskunnarlaust sallaðir niður. Custer hafði getið sér svolítið orðspor í Borgarastríðinu, en var í raun drykkfelldur og mjög óvíst þótti um geðheilsu hans, sérlega eftir að hann hóf hlutverk sitt sem “indíánabani”. Enda mætti hann endalokum sínum árið 1876 þegar hann gegn ráðum skynsamari manna leiddi riddaralið sitt í gildru Sioux-indíána, sem með ofurefli liðs þurrkuðu það gersamlega út í Orrustunni við Little Big Horn.
En í meðferð handritshöfundanna, og ekki síður Errols Flynn, varð Custer að misskildu ljúfmenni sem í raun reyndi allt hvað hann gat til að koma á friði við Síuxa, og verja þá fyrir ágangi fégráðugra landnema. Orrustan varð fyrir misskilning sem varð að undirlagi illra peningaafla í Washington, og Custer lét lífið sem fórnarlamb aðstæðna.
Þrátt fyrir hroðalega frjálslega meðferð á sögunni varðandi Custer og hans menn, mátti myndin þó eiga að hún sýndi þó indíána sem persónur, ekki bara villimenn og byssufóður “káboja”. Höfðingi Síuxa, Óði Fákur, var leikinn af Anthony Quinn í einum af sínum fyrstu hlutverkum. Hann er ekki að ráðast á hvíta menn af blóðþorsta einum saman, hann hefur hagsmuni síns þjóðflokks að gæta, og reynir hvað hann getur til að halda friðinn.
Wikipedia:
http://en.wikipedia.org/wiki/They_Died_with_their_Boots_On