Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

zorglubb
zorglubb Notandi frá fornöld Karlmaður
4.002 stig
Áhugamál: Kettir, Ljóð, Danstónlist
—–

Fleiri admins? (2 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Er það ekki málið þegar sögur skila sér svona seint og nær ekkert?

Sjálfskrufning númer 2 (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Opna varlega og hægt því hörundsár sál mín mun vera skoða hvikult hjarta, brotið og blátt mörg hefur það sjálft brotið og ber samviskunnar merki. Augun hafa svo margt ljótt séð svo grámi alls þess loðir við augasteinana. Skoða lungun, sem oft hafa hreytt úr sér lofti til hjálpar orðum mínum. Sé heilann, svo margbrotið verkfæri svo margbrotinn hugur og brotin liggja um mig allan.

Smá ábyrgð takk (12 álit)

í Kettir fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég hef tekið oft eftir því varðandi kattaeigendur á þessu áhugamáli að þeir virðast oft firra sig mestallri ábyrgð á kettinum sínum og þá oft á þeim forsendum að kötturinn sér svo voða voða sjálfstæður, og aldrei láti hann svona heima… Hér á ég þá við svör kattaeigenda við kvörtunum þeirra sem hafa fengið kött inn á heimili sitt, skítandi og étandi allt sem laust er, sporandi út, osfrv. Flest svör snúast um net í glugga,, sprey, allt til að varpa ábyrgðinni á þolandann í svona uppákomum....

Lærum smá sögu, hmm? (1 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég gekk ósköp varfærnislegum skrefum yfir svellið fyrir framan tröppurnar í áttina að þessari forljótu byggingu. Leit á hana eitt andartak. Hún leit út eins og hún hafi klárað peninginn hálfnuð með fegurðaraðgerðina sína. Vinstri hliðin var glæný og alsett þessu fína ljósbrúna betrekki, á meðan gamli hlutinn var grár gugginn og einhvernveginn rigndur niður. Fyrir innan innganginn sást ung stúlka rembast við að renna upp háhæla stígvéli, sem virtist í fyrstu of lítið á hana. Þegar ég kom nær...

Aldrei á réttri áætlun (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Október Laufin voru varla orðin rauð er seinustu snjókornin vættu líkin og fóðruðu beinagrind trésins. Apríl ég tók mér eitt snjókorn í hönd og las blauta tilkynninguna, þeir hafa víst frestað vorinu.

Þrír hermenn og arabi (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Flatmagar á malbikinu márinn og faðmar steinana nakin lífshætta hugur hans hatar mig. Höfum hann undir og hatur sem ber á brynju okkar nakin sprengihætta ekki hætta að skjótann.

Gerpur (14 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hehe, ég er enginn hip-hop gaur og tengist menningunni varla neitt. En mig langar að þyrla upp smá moldviðri ef ég get. Hér er saga ein sóðaleg af manni er hét Erpi framahóru tískunegra og atvinnugerpi sjaldan sést svo annað eins rotið örverpi sem geiflar sig með gullið sitt helvítis merkikerti Án leikskólans í kringum þig þú getur sjálfsagt ekkert rímur þínar drasl og ekkert finnst svo í þeim markvert á skjánum johhny naz eða blaz fituhlaz að vera meir´en lúkkið? alltof mikið braz Hoppar um...

Skjóta fyrst og banka svo (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Gatan er geðveiki að ganga um og guða á gluggana vitandi að köld kúla mín bíður merkt mínu nafni og lífi banka á dyrnar með hlaupinu hleypi af ætli fólkið inni sé að mála gólfið? Því þessi fallegi rauði litur rennur undan dyrunum.

Djöfull er tómlegt hérna! (2 álit)

í Körfubolti fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hvar eru linkar á innlendar og erlendar körfuboltasíður???? Upplýsingar um stöðu liða í NBA og íslenska boltanum? Seinustu leikir og svoleiðis,,,,, Ég kíki nú ekki oft hingað en mér finnst þetta áhugamál ekki ríkt af efni.

Má bjóða þér kaffi? (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Eilítið meira takk eða hvað finnst þér samviska mín? einn mola eða tvo? og smá sektardropa út í? En hvað bollastellið er flott utan um hugsanir þínar hegðunarmunstrið myndar svo falleg form. Má bjóða þér meðlæti? minningarbrot og brauð og smurðu svo sorg yfir það ku vera gott saman.

3d grafík, hvaða windows??? (5 álit)

í Grafísk hönnun fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hvaða Windows kerfi er þjálast fyrir þrívíddarvinnslu?? Er með 300mhz 128mb innra minni drasl skjákort sem ræður ekki við neitt (kaupa mér nýtt) voodoo 2

Vantar gefins skjákort (1 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Mig vantar hræódýrt eða gefins skjákort. Kortið mitt dó fyrir nokkru og fékk gefins hreinasta drasl kort sem gefur ekki meira en 800x600 upplausn í WIN Mig vantar bara eitthvað betra fyrir kúk og kanil.

Fram og tilbaka, í ljósið og heim (6 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég tek það fram að þetta bull er ekki samið eftir eigin reynslu. Sár mun sýn mín er ég framliðinn fer og fylgi eftir þessu bjarta ljósi heyrist að handan kall til mín og færist mér nær eygir leið í eyru mín og meðvitund kallað á Guðmund lækni kallað á Guðmund lækni vinsamlegast fari á stofu sex

Stattu þig (2 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Er ljós handan við hornið? Örugglega, ég þori bara ekki að kíkja. Úff hvað ég svitna, maður hefði átt að velja sér dekkri skyrtu, verð að muna eftir því næst. Ef það verður eitthvað næst. Hvað ætli fólk haldi? Heh, þarna kemur stressaður maður sem veit ekkert hvað hann er að gera. Það er spurning hvort ég viti það. Ég er ekkert svo klár, er bara með gott fólk í kringum mig sem fórnar öllu fyrir mig, fyrir mig, kjánann sem hefur svo gott og hreint hjarta. Trúið mér, mín tegund er að deyja út....

Beta Rokk er bjáni! (9 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Úff, ég heyrði um daginn í viðtali Sigurjón og Betu við Gunnar í krossinum. Ég tek það fram að ég er í engu sammála ofsatrúarrugli Gunnars krossara, en það var bara fyndið hvað hann tók Betu í rassgatið á meðan Beta Rokk kom engu út úr sér nema barnalegum og útþvældum gelgjupirring í formi ömurlegra skota og röksemda. Gunnar hló bara að henni =) Eftir þennan þátt er ég sannfærður um að Beta er soddan Ljóska með gelgjustrípur í hausnum.

Á rauðu ljósi (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ganga yfir gribbur tvær og lýsa loftið lævi þrungið rauður glampi glímir við regndropana um athygli mína að baki mér gellur við vélarflaut ég stíg niður fæti og treð bikaða slóð yfir gatnamótin. svo kemur aftur rautt.

Maður er myrtur (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Áttu til eitt orð? mannorðsmorð? hefurðu slæmt á samviskunni eða eru þau mörg hvílík vargöld í höfðinu á þér slítur sundur samviskan þræði geðheilsu þinnar lemur bjöllur og brýtur niður mannvit þitt merg og bein. Þar til hugsun ein lýsir upp rústirnar og sést lítið eitt blóm vaxa úr hugskoti þínu góð hugsun í rotnum haus en þú verður aldrei laus við vítið í viðjum vitundar þinnar en þú vissir það ekki satt?

Haustið kom og fór (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Tunglið á tíkall endurkastast af silfrinu norpandi næturhúmið er kreistir allt líf úr seinustu laufblöðunum. Ég traðka á mósaíkmynd þeirra en ósköp varlega hlusta á dauðaskrjáfið áður en vot gröf malbiksins skolar þeim að næsta niðurfalli.

Rautt ljós. (3 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Rauða ljósið virðist springa í milljón eindir í regndropunum á framrúðunni. Tinna stígur létt á bremsuna og smellir rúðuþurrkunum á. Ógeðslegt veður, rok og rigning, og hversvegna um mitt sumar? Hún andvarpar lágt, orðin sein, orðin sein, segir hún við sjálfa sig og lítur á mælaborðsklukkuna. Auðvitað þurfti hún að vakna of seint, gersamlega ignora útvarpsvekjarann og sofa út, dreyma. Hún bölvar sjálfri sér í huganum. Fyrir aftan hana heyrist hátt flaut, hún lítur í baksýnisspegilinn og...

Auglýsing fyrir undirtóna á muzik (1 álit)

í Danstónlist fyrir 22 árum, 8 mánuðum
LAgið sem heyrist undir í auglýsingu Undirtóna,,, hvaða lag er þetta??? heyrði auglýsinguna áðan á muzik.is Veit einhver svarið?

Smá pot (9 álit)

í Raftónlist fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Þetta er hálfgert fikt hjá mér eða dútl en hvað finnst þér? <a href="http://blacksun.vortex.is/schizo.mp3“>schizo</a> <a href=”http://blacksun.vortex.is/freakz.mp3">freakz</a

Tvö lög (1 álit)

í Danstónlist fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Þetta er nú ekkert meira en fikt, en mér þætti gaman að vita hvort mér miði í rétta átt :) <a href="http://blacksun.vortex.is/schizo.mp3“>schizo</a> <a href=”http://blacksun.vortex.is/freakz.mp3">freakz</a

Bláþráður (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Leikur þér að lífi mínu lítill er ég þræðirnir slitna einn og einn trosna og ég hangi feigur hjartað horfið í djúpið fyrir neðan. Ég rétti út hendi mína teygi eftir von í sál minni en ísilagður eyðimerktur hugur þinn brennir fingur mína og ég fell.

Djamm eða dauði! (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Sjænaður heimurinn af geislunum glansar g- strengs físur vagga hér um Ná tali af einni ef hún mér ansar ef eitthvað finnst nú í kollinum. Flassa augun stropuð í stróbinu stari á lambaketið hreyfist um í hassfylltu loftinu hálftómt er glasið. Æpi á barþjóninn, “ég vil bjór!” búinn að vera og farinn þreyttur, hugsi, úff hvað ég er sljór. hangsa lengur við barinn. Sólin rís úr rekkju sinni ropar á mig og hlær máski er nú mál að linni mígandi fullur er og glær.

Kynlíf er hollt (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Í bóli birnu bröltir bólfimi og glímutökin iðkar hossast svo í stoðum skröltir stingur í og mjaðmir liðkar. =o)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok