Frá því að ég fór að spila golf hef ég reynt að heimsækja aðra golfvelli að sumri til. Það er alltaf gaman að spila á nýjum velli og vera í nýju umhverfi. Ég hef nú ekki spilað alla velli á Íslandi. Samt langar mig til að segja ykkur frá þeim golfholum sem mér hefur þótt gaman að spila og glíma við. Holan sem er í fyrsta sæti hjá mér er á Meðaldalsvelli á Þingeyri. Brautin er númer sjö og er 129 metrar, par 3. Það þarf að slá yfir vatn alla leið og inn á flöt. Ef höggið mistekst þá fer það í...