Mig langaði bara að deila þessu með ykkur. Ég fékk tattoo bakteríuna bara áður en ég fékk fyrsta tattooið, og gata bakteríuna hef ég haft í nokkur ár. Ég er með eitt stykki tattoo og 4 göt(missti naflagatið mitt fyrir stuttu, greri fyrir:'(). Næstu plön með húðflúr eru að fá mér 2 fiðrildi púlsmegin á hægri hendina. Fá svo álf á mjöðmina. Ég hef samt verið að velta mér fyrir hvernig stíllinn ætti að vera, og ég er eiginlega meira að spá í svona drungalegan álf frekar en tinkerbell-like álf....