“Er vísindalega sannað að Neil Armstrong hafi verið fyrsti maðurinn til að ganga á tunglinu?” Upphaflega spurningin var á þessa leið: Hver tók myndina af Armstrong þegar hann tók “fyrstu” skrefin á tunglinu? Var þá ekki einhver annar búin að labba á tunglinu til að mynda hann? Þessi spurning kemur oft upp þegar fólk byrjar að efast um að NASA hafi farið til tunglsins. Margir samsæriskenningasmiðir hafa notað þetta sem vísbendingu um að fyrsta tunglferðin hafi jafnvel öll verið fölsuð í...