U-20 ára landsliðið fer út á annann í jólum Undir 20 ára landslið Íslands fer út til Sosnowiec í Póllandi á annann dag jóla og kemur heim aftur þann 5. janúar. Liðið leikur í heimsmeistarakeppni landsliða U-20 og í okkar riðli eru Rúmenía, Spánn, Belgía, Holland, Ísland og gestgjafarnir Pólland. Ljóst er að þessi ferð verður liði okkar erfið þar sem öll þessi lið eru talsvert fyrir ofan okkur á styrkleikalista IIHF. En strákarnir okkar eru bjarsýnir með laufabrauð og hangikjet i belgnum...