“Það voru viss hernaðarleg skotmörk sem var mikilvægt að ráðast á. Og því miður falla saklausir borgarar oft í þannig aðgerðum.” Þess vegna eru stríð og hernaður heimskulegur og fornaldarlegur… “Þú talar eins og þeir hafi verið að leika sér að skjóta upp byggingar án þess að hafa ástæðu til þess.” Auðvitað voru þeir ekki að því, en það er óþarfi finnst mér að þurfa að droppa SPRENGJUM á svæði þar sem vitað er að saklausir borgarar búa. Hver var annars að byðja BNA menn að ráðast inn í Írak...
hef ekkert persónulega á móti “frelsun” Íraks…en þeir voru ekki að beita aðferðum til þess að frelsa þóðina! er það að droppa sprengjum hægri vinstri á staði sem vitað er um saklausa borgara til að ná einum manni frá völdum að frelsa þjóð?? þetta átti heldur ekki að vera nein frelsun Íraks…
ég er ekki að segja að það hafi verið eitthvað slæmtm fyrir Íraka að ekki hafi fundist nein gereyðingarvopn…þeir voru heldur ekki að gera þetta fyrir Íraka heldur þjóðaröryggi BNA Allavegana þá hef ég ekki heyrt neinar aðrar forsendur stríðsins, ef þú veist um einhverjar máttu endilega segja mér! Þú hefur reyndar rétt fyrir þér með að Saddam gæti hafað smyglað þessum vopnum til Sýrlands og það er möguleiki sem ekki má útiloka!
ég er nú ekki viss um að Bush hafi farið útí þetta stríð með hagsmuni Íraka íhuga… “Var stríðið rangt af því að þeir höfðu rangt fyrir sér með gereyðingarvopnin ?” já ákkúrat! það voru forsendur stríðsins!
Það er náttúrulega frábært að þessi þjóð sé að verða að lýðræðisríki en það var ekki “mission” Bandaríkjamanna að frelsa Írak undir oki Saddam Hussein. Verkefnið var að finna gjöreyðingavopn í Írak en þau hafa ekki fundist og eru ekki til staðar! heldur hafa Bandaríkjamenn ekki almennilega viðurkennt mistök sín heldur fela sig á bakvið það að hafa frelsað Írak. Ég er ekki alveg viss um að BNA menn hafa ráðist inn í Írak fyrir olíu eins og sumir segja…en eitt er víst að stríðið allt var rugl!
veistu það skuggi minn…ég er næstum því bara sammála þér!:D það eru miklu fleiri þarna úti í þessum stóra heimi sem eiga það miklu meira skilið að flytjast inn til Íslands en Bobby Fischer. Hann hefur ekki sýnt neinn áhuga á Íslenskri menningu eða tungu heldur vill bara leita hælis hérna. Það er örugglega fullt af fólki sem býr í stríðshrjáðum löndum og eiga ekki einusinni lögheimili í landi sínu.
það er allavega mín skoðun að vilja ekki hafa íslenskan her, en ef BNA menn eru svo æstir í að verja okkur þá er mér sama svo lengi sem að enginn íslenskur her sé, eða neitt stríð verði háð á Íslandi…né annarsstaðar náttúrulega :)
ég samt öfunda þig og þá sem fóru á korn geðveikt mikið að hafa séð fantomas! þó ég myndi frekar vilja nakinn útí óbyggðum í Síberíu en að fara á tónleika með korn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..