Ég heyrði um þetta talað um daginn og hef mikið verið að spá í þessari matargerð og ákvað að leita mér að upplýsingum um hana. Ákvað bara að deila þeim með ykkur hinum :) Þessar upplýsingar tók ég beint af síðu sem heitir veitingavefurinn.is, alveg þrusugóð síða :) Sushi hefur verið að ryðja sér til rúms hér á landi að undanförnu og að mínu mati var kominn tími til. Þessi matargerð er alveg frábær þegar hún er vel gerð. Fyrir utan að vera hollt, fitusnautt og gott, þá er sushi svo hreint,...