Í upphafi var ekkert, ekkert nema tómið. Hið mikla stóra tóm, tóminu leiddist og tómið var einmanna þar til dag einn að tómið fann lausn á þessari miklu eymd og leiðindum. Tómið áttaði sig á því hversvegna það var einmanna, það var einmanna því það var eitt og sér, ekkert annað. Svo tómið ákvað að skapa eitthvað, eitthvað rosalega sérstakt, einstakt, frábært og æðislegt. Tómið var tilbúið að gera hvað sem er, bara til þess að hætta að vera einmanna. Tómið fórnaði svo hluta af sjálfu sér til...