Þú verður að átta þig á því að til þess að gera allt sem þú ert að minnast á, skalla einhvern, sparka í punginn á honum eða pota hann í auga, þá þarftu að komast að andstæðingnum, þú þarft að koma honum í rétta stöðu og passa það að hann verji sig ekki. Þetta eru ekki hlutir sem þú lærirð með að pota út í loftið og segjast vera að æfa þig fyrir að pota fólk í augað. Segjum sem svo að þú ætlirð að pota í augað á einhverjum, þú getur ekki labbað upp að honum og potað, ekki frekar en...