Sullaði þessu saman í gær, ákaflega gott, auðvitað er hægt að gera allskonar útgáfur eftir smekk. Mín uppskrift var einhvern vegin svona. Tagliatelle með tómat og fylltum kjúklingabringum (fyrir 2): Innihald: tvær kjúklingabringur, tómatpúrra, 1 dós Hunts diced tomatoes m/kryddjurtum, rautt pestó, ca 4 beikonsneiðar, tagliatelle, hvítlaukur, ólífuolía, basilika, salt og pipar. Aðferð: Brúnið bringurnar (saltaðar og pipraðar) á pönnu í skvettu af ólífuolíu og hvítlauk þar til þær eru...