Sælt veri fólkið. Á morgun, 17 febrúar, er öskudagur. Ég ætla að skrifa smá um minn öskudag, eða þann öskudag sem ég man eftir. Ég væri rosalega til í að verða aftur 10 ára, bara þennan eina dag :) Þar sem ég er Akureyringur, var öskudagurinn alltaf einn skemmtilegasti dagur ársins. Öskudagsliðin æfðu lengi, mikill metnaður í heimagerðum búningum og svo var farið út að syngja fyrir kl 8 á öskudagsmorgni. Þá arkaði maður fyrirtæki úr fyrirtæki, söng og fékk nammi (eðs stundum bakkelsi, svala...