Í tölvunni minni eru tveir HDD, annar 30 GB með Windowsinu og öllu því á, og svo einn 160 GB fyrir alls konar drasl. Um daginn ætlaði ég að setja Linux upp á tölvuna mína, það gekk ekki alveg svo að ókei, ég fór bara aftur í windowsið og notaði það. Síðan ætlaði ég að prófa aftur og það tókst ekki þá heldur en þegar ég ætlaði svo að fara í windows þá kom alltaf “can't boot from cd” eins og HDD með windowsinu væri ekkert til staðar eða eitthvað. Svo að ég prófaði að fara í setup og reyna að...