Kobe átti náttúrulega ömurlegan fyrsta leik en hefur verið betri í seinustu tveimur (enda unnu Lakers þá leiki). Þú gleymir nokkrum mikilvægum tölfræðiþáttum, þú mættir alveg bæta við fráköstum (Iverson 7,0; Kobe 5,7), blokkum (Iverson 0,33; Kobe 1,67), vítahittni (Iverson 73,1%; Kobe 100%) og loks töpuðum boltum (Iverson 2,3; Kobe 3,7). Iverson hefur verið að spila betur en Kobe, en Lakers er 2-1 yfir þannig að Kobe er að vinna það sem skiptir máli.