Ef það virkar ekki sem þeir fyrir ofan sögðu geturu náttúrulega í hvert skipti sem þú opnar fileið hægri klikkað og valið open with og þar rétta forritið. Stundum þegar ég geri það opnast fileið næst með því forriti líka(Y)
Ég fór á subway á bankastræti um daginn og ég held að ég hafi bara aldrei lent á áhugalausari starfsmanni! Hahaha.. Hún horfði bara eitthvað útí loftið á meðan ég var að tala við hana og svo eftir svona hálfa mínútu sneri hún hausnum að mér og sagði “hvað sagðiru?!” og þá sagði ég bara gúúúrkur og hún skellti þeim á og svo restinni af grænmetinu á sniglahraða. Úff. En hey, allir eiga sína slæmu daga. Kannski var kærastinn hennar að dömpa henni! :O Annars bara respect handa öllum subway...
Eyddu þeim lögum bara útaf itunes og addaðu þeim aftur. Annars var ég orðin svo pirruð á þessu locate dæmi ef maður færði lögin að ég stillti það þannig að allt copyaðist í itunes library og eyddi svo bara upprunalega fælunum.
Ég er með 4788 lög, 25 GB og mér finnst það ekkert smá óþægilegt að vera með svona mikið! Hahah.. Er kannski með á shuffle og þá þarf ég að skippa yfir svona 6-7 lög þar til eitthvað sem ég nenni að hlusta á kemur. En þessi gaur hlustar kannski á heilar plötur í einu og svona.
Onei! We stay strong sister! Hahah, sjet, það eru samt alltaf svona týpur einhversstaðar í kringum mann.. maður kemst ekki hjá því. Bara gera gott úr þessu, öhömm, hvernig sem það er gert oO
Ö en já, sko, var þetta kaldhæðni? Hahah ég er svo clueless! Lína sagði mér að þetta væri kaldhæðni og ég er bara ekki mjög viss! Þú veist þá alveg hver þetta er? :)
Ég var að komast að því að manneskja sem mér er mjög illa við komst inn. Og þetta er svona gella sem að gleypir alla athyglina og e-ð.. En það er samt ekki aðalmálið sko, ég er bara að spá í því hvort að það væri betra fyrir mig að vera í bekkjarkerfi og svo ætlaði vinkona mín með mér í MH, en skipti svo um skoðun og fór í MR og eitthvað svona vesen. Annars er ég að reyna að bæla þetta niður! Held að það verði bara gaman í MH. Vona það allavega.
Þetta helvíti virkar ekki! Runtime error eitthvað.. argggghhh. Mig langar að vita þetta NÚNA! Ég er samt 100% að ég komist inn. 9 í meðal úr samræmdu og líka í þessum sömu greinum í skólanum. Og 10 í mætingareinkunn. Djöfull er ég góð maður. En allavega, ég veit að ég kemst inn, en ég vil bara vita það og vera pottþétt á því og bara.. já.
Oh mig langar einmitt líka til Kyoto! Darn you. Jæja, ég flyt bara einn daginn þangað, og þú færð ekki að koma með! Ég er ógeðlega bitur gella sko. Ojæja, ég fæ allavega að fara til Berlínar í sumar(Y) En skemmtu þér vel!
Já, ég var alltaf með rosa problem á myspace þegar ég notaði firefox, en svo skipti ég yfir í opera og allt lagaðist! (Y) Ef þú notar firefox, prófaðu þá ie og öfugt. Og ef það virkar ekki prófaðu þá opera. Opera er awesome.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..