Nú veit ég ekki með það hvort þetta er eitthvað sér fyrir málabraut eða eitthvað, en ég er búin að komast að því að þetta er eðlis- og efnafræðiáfangi og bókin Orka og umhverfi er kennd. Og ég sökka í honum(allavega þessum eina tíma og heimavinnunni-_-).
Go valur! Ég held að það yrði töff að hafa bara örninn og “valur”, ekki bakgrunninn. Hann er svo strípóttur og áberandi eitthvað, en hei, þetta er samt töff.
Hahah, síðustu tvo morgna hef ég komið í skólann á sama tíma og 13 kemur, og það er frekar fyndið að sjá hjörðina úr strætó flykkjast upp gangstéttina og inn í skólann:') Geðveikt margir sem taka þennan strætó.
Ég nefnilega veit ekkert um þennan áfanga heldur. Hann er hvergi á bókalistum, haha. Ég fer í fyrsta tímann í honum í fyrramálið svo ég kemst víst að því þá.. Ég veit ekki hvort hann er sérstaklega fyrir einhverja braut, ég er allavega á málabraut. En líl er allavega lífsleikni(Y) Umsjónarkennarinn er með þennan áfanga og kynnir okkur skólann og allskonar og svo hvernig við veljum áfanga þegar að því kemur og allt þannig.
Hahah mig minnir að það hafi verið Afhverju sem var með undirskriftina um að hommar væru ekki til, þetta væri allt bara rugl í einhverjum gaur í garðabæ:D Fékk mig alltaf til að hlæja.
Ééég elska lax. Nema þegar hann er ofsoðinn x( Soðin ýsa er oft heima hjá mér, mér finnst það frekar bragðlaust, ég borða það bara því ég er svöng.. svo já, ég borða alveg fisk, nema nætursaltaðan fisk. Eugh.
Heyrðu ég tók nú bara svona til orða, meinti ekkert hræðilegt með þessu. Mér finnst bara margir hérna vera rosalega hneykslaðir á trúuðum vegna þess að þeir trúa (og nei ég veit ekki um eitthvað eitt sérstakt sem ég get bent þér á, frekar andinn í samræðunum hér allstaðar) og fannst gott að það kommentaði loksins einhver á þetta. Sorrí.
Ég er í ens403, stæ103, fél103, nát133, lík101, líl101 og fra103. Frekar sátt bara.. 20 einingar, búin þrisvar 2 og tvisvar 15:30. Byrja á morgun! Jeminn..
Þú slepptir nú nokkuð mikilvægu orði í þessari setningu í tilvitnuninni, ég sagði margir ótrúaðir hér á huga halda því fram að trúaðir séu hálfvitar sem eiga ekki skilið að lifa. Ekki kúl. Margir, ekki allir.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..