Ég ætla að byrja á að þakka ykkur fyrir alla hjálpina með bílakaup, ég er búin að prófa ekkert smá marga bíla undanfarna daga og fór í dag á Selfoss þar sem þar voru tveir bílar sem mér leist á. Annars vegar Honda Accord 1992, keyrð 146 þús. og svo Toyota Carina E 1993, keyrð 209 þús. Accordinn fannst mér skemmtilegur nema að hann er svo ólipur. Ég hef átt nokkra bíla af þessarri stærðargráðu en aldrei lent í veseni á bílastæðum eins og á þessum bíl. En hann lítur frábærlega vel út, lítið...