Grindavík kom á óvart með því að sigra ÍBV, 1-0, í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í dag. Stjarnan og Valur skildu jöfn 1-1, Breiðablik sigraði Þór/KA/KS á Akureyri 3-0 og KR burstaði FH 11-0. Markvörður FH, Guðbjörg Gunnarsdóttir, meiddist illa eftir 20 mínútur og útispilarinn Elísabet Sveinsdóttir fór í markið og hafði nóg að gera.