Geðveik mynd. Hamarsatriðið var eins og þú sagðir, góð ástæða til að sjá myndina :) En þess má til gamans geta að þessi mynd er númer 2 í þriggja mynda flokki sem fjallar um hefnd. Sympathy for Mr. Vengeance var fyrst, svo kom Oldboy og svo er Sympathy for Lady Vengeance sú þriðja og nýjasta. Já, svo er auðvitað verið að endurgera oldboy fyrir amerískan markað, og ég leyfi mér að efast um að það takist vel.
Horfðu á war on drugs þáttinn með penn % teller, fyrsti þátturinn ef ég man rétt. Þeir gefa ágætis rök fyrir hversvegna þetta er bara ekki að virka og lögleiðing gæti jafnvel gert góða hluti.
færð þér nikótín tyggló eða eitthvað svipað og minnkar það svo reglulega, farðu bara niðrá næsta apótek og spurðu. Eða hættir einfaldlega að reykja bara og gengur í gegnum þessa örfáu daga af fráhvarfseinkennum, það ætti að vera hægt með nægilegri sjálfsstjórn :D
Hvaða rannsóknum? Nú eru and-reykingamenn duglegir að vitna í skýrslu EPA frá 92 þegar þeir tala um hættur reykinga, en sú skýrsla er auðvitað ekki marktæk. Eru þessar rannsóknir sem þú vitnar í marktækar?
“hvar heyrðir þú þetta rugl” Ég sagði þér það, discovery. Það var ýtarlegur þáttur um þetta mál þar um daginn. Sérstakar heilastöðvar samkynhneigðra er aðeins öðruvísi við fæðingu. þessir afhommuðu hommar sem þú ert að tala um eru sennilega bara að þykjast, fóru aftur í skápinn, nú eða þeir eru tvíkynhneigðir. Afhommum er ekki möguleg, því miður fyrir þig.
já og auðvitað það besta: 242. gr. c. Hafi ærumeiðandi aðdróttun verið borin fram skriflega, en annaðhvort nafnlaust eða með rangri eða tilbúinni undirskrift, skal brotið sæta opinberri ákæru
236. gr. Sé ærumeiðandi aðdróttun höfð í frammi eða borin út gegn betri vitund, þá varðar það …1) fangelsi allt að 2 árum. Sé aðdróttun birt eða borin út opinberlega, enda þótt sakaráberi hafi ekki haft sennilega ástæðu til að halda hana rétta, þá varðar það sektum …1) eða fangelsi allt að 2 árum
233. gr. a. Hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ræðst opinberlega á [mann eða hóp manna]1) vegna þjóðernis þeirra, litarháttar, [kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar]1) sæti sektum …2) eða fangelsi allt að 2 árum.]3)
Þú ert eitthvað að ruglast varðandi Biblíuna. http://images.amazon.com/images/P/0834003465.01._AA240_SCLZZZZZZZ_.jpg Þetta er Biblían, smá link mistök greinilega hjá þér. Vildi bara benda þér á það.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..