Fyrir nokkrum dögum dreymdi mig all rosalegan draum. Ég vaknaði að minnsta kosti 10 sinnum yfir nóttina, og alltaf hélt draumurinn áfram í hvert skipti sem ég sofnaði. Ég man ekki alveg í hvaða röð draumarnir voru en þeir voru allir svipaðir, þeir voru þannig að ég sá sjálfan mig í þriðju persónu ganga með mismunandi litaða kassa (ýmist gula, rauða, græna, ljósgræna, bláa eða eitthvað annað) og í kössunum var eitt líffæri úr mér (lunga, hjarta, nýru, ofl) Það var allt kolsvart í kringum mig...