Góðan dag. Það bar óvæntan og ómerktan gest að garði til okkar í dag. Týr var í bandi í garðinum og ég sat á tröppunni í mestu makindum, þegar stór svartur labrador (að ég held örugglega, gæti kannski verið eitthvað blandaður) birtist allt í einu. Ég var hálf smeyk fyrst,vissi ekki hver viðbrögð þeirra við hvor öðrum yrðu, en það var að ástæðulausu. Þeir hoppuðu og skoppuðu kringum hvorn annan. En sá svarti var algjörlega ómerktur, ekki með ól eða neitt, svo ég prufaði að hringja í...