Þú getur prófað að fara í Dýraríkið og kaupa 100% alvörumat sem er samt hentugur fyrir kisur. Það eru litlar dósir, frekar dýrar en þar er smokkfiskur og allskyns sem kisum finnst gott, en á ekki að hafa þetta leiðinda vandamál í för með sér. Svo getur verið gott að kaupa svona gúmmi hanska og klappa þeim með, hann tekur í sig laus hár og þá eru þau ekki úti um allt. Vona að þetta hjálpi.