Ein spurning var þannig: Hvaða hljóðbreyting er kjalar-kili? (minnir mig) I-hljóðvarp? U-hljóðvarp? Klofning? Hljóðskipti? Ég og vinir mínir vorum ekki viss með þetta, sumir vildu segja hljóðskipti aðrir klofning. Er einhver íslenskusérfræðingur hérna með svarið? Ég veðjaði á klofningu og þetta er hvers vegna: “Upprunalegt ‘e’ hefur sums staðar breyst í ‘i’ með i-hljóðvarpi, sbr. skjöldur, skildi, skjaldar. Frumhljóðið kemur fram í skyldri orðmynd, skel. Fleiri dæmi: fjörður, firði; mjöður,...