Sumum eftirminnilegum hrossum tengjast knaparnir svo sterkt að í minningunni verða hestur og knapi eitt. Það á sér stað eitthvað undarlegt samspil sem gerir það að verkum að manni finnst sem maður hestur renni saman í eitt. Þetta gerist ekki oft en það er því eftirminnilegra þegar það gerist. Þetta er eitt af því fjölmarga sem gerir hestamennskuna svo heillandi sem hún er og fær mann til að sveiflast allan tilfinningaskalan í áhorfendabrekkunni, ár eftir ár og áratug eftir áratug. Alltaf er...