Þetta eru gleðifréttir. Ég sá einmitt Gangs of New York um helgina og varð svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum, þvílík mynd! Daniel Day-Lewis er stórkostlegur í þessari mynd, sá eini sem ég get ímyndað mér að gæti gert þennan fatnað, sem hann var í, svalan. Ég stökk uppúr stólnum mínum þegar það var tilkynnt að hann hafi unnið BAFTA verðlaunin, hann á þau svo sannarlega skilið. Ég vona að hann fái líka Óskarsverðlaunin