Loksins tapar Ipswich stigum, og var það gegn Charlton. Við það minnkuðu möguleikar þeirra á meistaradeildarsæti, því eins og þeir sem fylgjast með vita, þá hefur mesta spennan undanfarið verið um þetta þriðja sæti. Þó er ekkert gefið í þessum efnum, því Liverpool á Bradford, Newcastle, Chelsea og Charlton eftir, og þótt bradford leikurinn ætti að teljast gefins, þá hefur Poolurum ekki gengið 100% gegn þeim áður. Minnumst tapsins á Anfield á síðasta tímabili. Leeds á Leicester, Arsenal og...