Ástralinn Nick O'Hern byrjaði vel á ástralska Mastersmótinu, fékk tvo erni og fjóra fugla og lék á 64 höggum, eða 8 höggum undir pari. Robert Allenby, Adam Bland, Steven Conran og John Senden eru jafnir í öðru sæti, léku á 67 höggum. Peter O'Malley og Ný-Sjálendingurinn Brad Iles léku á 68 höggum og deila sjötta sæti. Meistarinn frá í fyrra, Richard Green, lék á 73 höggum eða einu höggi yfir pari og Adam Scott átti slakan dag, lék á 76 höggum – fékk fimm skolla og einn þrefaldan skolla og 5....