Mér datt í hug að deila með ykkur útbúnaðarlista sem ég var að grafa upp. Þetta miðar við vetrarferðir hjá dróttskátum. Njótið vel: Þessi listi er í röð eftir mikilvægi, það eftsta er mikilvægast. Athugið að við förum EKKI á fjöll á Íslandi án þess að vera í ullarnærfötum, það er lífshættulegt að sleppa þeim. Ég hef allavega aldrei heyrt um að maður hafi orðið úti á Íslandi og verið í ullarnærfötum. Þessi listi er ekki tæmandi, það er til alls kyns sniðugt og þægilegt dót sem hægt er að taka...