pylsa, pulsa -u, -ur KVK langur og mjór himnubelgur fylltur (söltuðu og reyktu) kjötdeigi vínarpylsa spægipulsa pylsubrauð vínarpylsa í brauðhleif með m.a. tómatsósu, sinnepi, lauk (steiktum, hráum), remúlaði eina pulsu með öllu nema hráum
heitir þetta ekki snakebite (ekki snakebites)? :) annars, ekki svo algengt finnst mér, sé það ekkert það oft hérna. og kostar ekki svona yfirleitt á flestum piercing-stofum um 5000 kr gatið? kannski eitthvað ódýrara ef þú ætlar að fá þér bæði götin.
voða lítið að marka skólaheimsóknirnar samt. eða allavega í MR, veit ekki um hina skólana, ég hataði MR kynninguna og þegar ég byrjaði í MR var kynningin alls ekki lýsandi skólanum, en ég er ekki viss hverjir eru með kynningarnar í ár.
mér finnst eðlilegt að leyfa ekki húfur í tímum, kannski afþví mér finnst óþægilegt að horfa á fólk inni í útifötum og fæ svona óþægilegan hitahroll um mig (fæ svipaða tilfinningu að sjá fólk í litlum fötum úti þegar það er skítakalt). Er það ekki bara gamall siður að vera með húfur úti, kurteisi bara.
Hef bara heyrt gott um báða skólana. Get alveg mælt með MR, skemmtilegt nám (krefjandi, en skemmtilegt), æðislegt félagslíf o.s.frv. Bætt við 9. mars 2008 - 16:32 og já, kennararnir eru stórfurðulegir (á góðan hátt, manni leiðist allavega ekki jafn mikið í tímum hjá þessum furðufuglum).
já, ég á “more how to draw manga - the basics” eða eitthvað álíka, það eru til fleiri í þessari seríu, allavega ein sem er sérstaklega um einmitt hvernig fötin eiga að liggja og svoleiðis. annars, ef þú vilt læra meira um “anatomyu líkamans” mæli ég með flestum öðrum bókum en mangabókunum, afþví þær eru ekkert sérlega góðar í þeim efnum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..