Þessi “galli” er slit eða sambandsleysi í snúrunni hjá þér. Einhver verið að keyra á skrifborðsstól með hjólum yfir snúruna hjá þér. Ég var með MX500 sem ég keyrði of oft yfir. Kom ekkert annað en MX510 til greina enda 8 takkar til að binda og leika sér með. Ég nota reyndar bara 5 af þeim en ætti erfitt með að venja mig af því, ýkt þægilegt þegar maður venst því. Vissulega eru MX mýsnar þyngri en MS en truflar mig ekki neitt. Vonandi hjálpar þetta meira en einnar línu svörin. Kveðja,...