Ég er búin að hlusta á þetta band núna í ca. 6 ár, og þetta er ennþá uppáhálds bandið mitt :) Elska lagasmíðina, á allar plöturnar og fíla þær allar (samt ekki öll lög jafn mikið) En jú röddin hans Billy getur verið soddan væl, en það er bara hans stíll og röddin hans er jú bara svona, þýðir lítið að tuða yfir því. Fyrir þá sem þekkja þetta band ekki þá mæli ég með Siamese Dream og Mellon Collie And The Infinite Sadness diskunum til að byrja með ef þið viljið kynna ykkur þetta band. \m/ Rock...