Ég ætla ekki að setja út á þínar skoðanir í sambandi við Skjá 1 enda hefur þú fullan rétt að hafa þær skoðanir sem þú vilt. Ég vil samt benda þér og öðrum á að hjá Skjánum starfa 45 manns, duglegt fólk sem þarf flest að sjá fyrir fjöldskyldu. Fyrir hvert fyrirtæki sem fer í þrot og fyrir hvern einstakling sem missir vinnuna þá veldur það keðjuverkandi áhrifum í þjóðfélaginu og eykur á vanda okkar allra.