Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Annar stjórnandi? (63 álit)

í Sorp fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ef það ætti að koma einn annar stjórnandi hingað á áhugamálið sorp, til viðbótar við Haddii, hvern myndir ÞÚ vilja sjá? *pointing at YOU* Við vitum náttúrulega að Haddii stjórnar áhugamálinu betur en áður en hann kom, en auðvitað væri betra að fá einhvern alvöru sorpara. Ég myndi kjósa notandann Sorparar, mér líkar vel við hann, og nickið hans :Ð BANNAÐ AÐ KJÓSA SJÁLFAN SIG!!!

Öryggisafrit (5 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Hvaða öryggisafrit var verið að taka af huga áðan?

Blobs :Ð (13 álit)

í Sorp fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Smá kasmír átak! Allir að fara inn á þessa síðu og fá sér blobba á kasmírinn :Ð (Eru þeir ekki sætir? :-Ð)

UN (3 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Veit einhver hvar rýmingarútsalan á UN skóm er? Það er auglýsing í Blaðinu, bls. 25, en þar eru bara verð, hvorki staðsetning né opnunartími. Getur einhvr sagt mér hvar þetta er og hvenær er opið?

Skrýtið... (49 álit)

í Sorp fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Hafið þið tekið eftir því í yfirlitinu yfir þræði fyrir neðan þráðinn sem þú ert að lesa koma stundum of stór bil á milli þráðaheitanna, er þetta bara svona hjá mér? *fer út í horn að gráta, sorpið er bilað, úhuhuhu* :Ð

Nýtt áhugamál, prófunaráhugamál :Ð (64 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Fólk hérna á huga hefur verið að koma með hugmyndir að nýjum áhugamálum sem aðrir virðast styðja, en stóra spurningin er, ef eitthvað verður af þessum uppástungum, verða þessi nýju áhugamál þá eitthvað virk? Ég er með lausnina: Eitt nýtt áhugamál verður opnað, sem er svona prófunarsvæði fyrir ýmis ný áhugamál. Þegar einhver kemur með hugmynd að áhugamáli er settur inn nýr korkur á prófunaráhugamálið, og þá getur vefstjóri séð hvort áhugamálið myndi standa undir sér, þ.e.a.s. vera nógu og...

Verslunarmannahelgin... (13 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Þeir sem eru að fara út úr bænum á fimmtudag/föstudag ættu að vita af þessu: http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1150519 Þið sem farið þarna, það getur verið betra að fara í gegnum Grafarvoginn *hrollur* til að forðast umferðarteppu. Bara að láta ykkur vita :Ð

Themes fyrir Windows XP (6 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Sælir veri hugarar :Ð Ég fór inn á www.themexp.org til að finna mér theme fyrir tölvuna, og fann þetta hérna: http://www.themexp.org/preview.php?mid=81954&type=vs&view=date&page=&cat=&name=Metallica.zip Þegar ég downloadaði því gerði ég ábyggilega eitthvað vitlaust, þar sem theme-ið vill ekki birtast rétt þegar ég vel það í properties á desktoppinu. Ég er algjör n00b varðandi svona zip filea, þannig að ég vil biðja ykkur um að hjálpa mér aðeins. Getur einhver sagt mér hvernig á að fá...

Fjarskipti? (4 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Hvaða áhugamál er eiginlega fjarskipti? Efsta greinin á forsíðunni er staðsett þar, en þegar ég smelli á hana kemur bara “Aðeins valdir notendur geta tekið þátt á þessu áhugamáli”. Veit einhver???

Stjórnendur (31 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Smá könnun í gangi: Hvaða stjórnendur finnst ykkur virkastir, og þá á hvaða áhugamáli? Svarið nú :Ð

Spurning varðandi London eye (4 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Ég er að fara til London á morgun, er að hugsa um að fara í London eye, en verð í dálítilli tímaþröng þarna úti svo ég spyr: Hvað tekur ferð í London eye langan tíma sirka? (Fyrir þá sem ekki vita er London eye stærsta parísarhjól í heimi og úr því sér maður yfir alla London). Fljót svör, plís

London (ekkert tengt hamförunum á neinn hátt!) (72 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Halló allir. Í gær var ég að frétta að ég færi til London á mánudaginn, frétti það á besta tíma þegar ég var nýbúinn að frétta um hryðjuverkin ca. klukkutíma áður. Þetta verður ekki skemmtiferð sem slík, en ég hef einn frídag til að eyða þarna. Svo ég spyr: Hvað er gaman að gera í London sem er skemmtilegt og sýnir rétta mynd af London? Er btw. 15 ára og held að söfn og leikhús og svona sé út úr myndinni.

A question. (14 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Þið megið kalla mig heimskan fyrir að spyrja að þessu en… …Ég var að pæla í því í gær, af hverju er gúmmí á gervigrasvöllum, var á einum svoleiðis í gær (ekki að spila samt). Svarið nú!

Rammstein (11 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég vildi bara spyrja að einu, hvaða tónlistarstefnu fylgir þýska hljómsveitin RAmmstein???

Kex (7 álit)

í Húmor fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Þegar kexið fór í bankann, hvað gerðist þá við það? Það varð Ritz kex ;D

Paris Hilton (12 álit)

í Húmor fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Af hverju voru foreldrar Parisar Hilton svo reið út í hana þegar þau sáu kynlífsmyndbandið með henni? Því að á handklæðunum í bakgrunninum stóð “Holyday inn”.

Um áhugamálið (2 álit)

í Raunveruleikaþættir fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Það er stundum sem mjög “fyndið” fólk kemur inn á þetta áhugamál til þess eins að eyðileggja bandaríska raunveruleikaþætti fyrir öðrum. T.d. með því að skrifa kork um sigurvegarann, eða svara korki eða grein um þáttinn með spoiler. Þetta hefur ekki eyðilagt mikið fyrir mér, þar sem ég fylgist ekki með þessum tilteknu þáttum, en mér finnst samt að stjórnendur mættu vera duglegri að kíkja hingað inn og eyða svörum eða korkum sem innihalda spoilera.

AK-17 kemur til Jarðar! (1 álit)

í Smásögur fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Kennari, kennari, kallaði Tumi til Guðrúnar kennara, það er geimskip að lenda á skólalóðinni. Þá sagði Guðrún: Ekki bulla svona drengur. Þá fóru fleiri að líta út um gluggann og sáu undarlega veru stíga út úr geimskipinu. Guðrún, sögðu krakkarnir, þetta er satt, það er geimskip þarna. Og meira að segja geimvera. Þá leit Guðrún út um gluggann og það leið yfir hana. Þá flýttu krakkarnir sér út að skoða. Gangarnir voru fullir af krökkum og kennurum sem höfðu séð geimveruna og vildu skoða hana...

DV (35 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Í helgarblaði DV núna um helgina rakst ég á dálítið sem mér fannst ekki viðeigandi. Á bls. 12-13 er verið að tala um barnaníðingsmál í smáíbúðarhverfinu í Rvk. Það væri varla frásögum færandi nema fyrir þær sakir að mynd á bls. 13 sýnir barnaníðinginn, en búið er að rugla fyrir andlitið á honum! Ekki er nefnt nafn hans né neinar aðrar upplýsingar. Maðurinn er búinn að játa brot gegn einni stúlku, en grunaður um brot gegn þremur öðrum. Mér finnast þetta skítléleg vinnubrögð hjá DV, að birta...

Könnunin (15 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Persónulega finnst mér best að drekka það úr svona kók glerglasi eins og maður fær á veitingastöðum. Vantar þann möguleika.

Verð í skóla... (4 álit)

í Skóli fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Getur einhver sagt mér hvað mismunandi skólar kosta á ári, langar aðeins að forvitnast þar sem ég þarf að hugsa um þetta á næsta ári (var að klára 9. bekk). Búinn að leita á heimasíðum nokkurra skóla, sem og á gúgúl, en finn ekkert.

Látum stigahórur hætta að skrifa tilgangslausa pósta!!! (32 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég var að fá snilldar hugmynd til að halda þeim sem stunda stigavændi frá því að pósta á korkana. Einfaldlega á bara að taka upp “Ég ætla” kubbinn aftur (var þannig að ef maður smellti á hann fékk maður 2 stig, sama og fyrir korka) og uppfæra hann reglulega á sem flestum áhugamálum. Ég er ekkert að láta þessar stigahórur pirra mig neitt sérstaklega, en vælið í sumum hérna yfir þeim er svo fjandi leiðinlegt. Sniðug hugmynd, ekki satt?

Hugmynd í sambandi við greinar og myndir. (2 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Það kerfi sem er á korkunum fyrir ólesið og ný álit er mjög þægilegt. Hvernig væri að setja þannig á greinar og myndir líka til þægindaauka? Veit að það stendur hvað mörg álit eru komin á greinar en maður man ekkert alltaf þá tölu. Það væri mjög gott ef hæstvirtur vefstjóri oss JReykdal myndi koma þessari hugmynd í framkvæmd, og hafa þá eins og á korkunum grænt fyrir ólesið og gult fyrir nú álit. Takk fyrir!

Skólarapp (30 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Þið munið öll eftir laginu rapp, skólarapp, er það ekki? Ég heyrði það áðan, og í því er verið að tala niðrandi um Asíubúa. Ég hélt að fræðslumiðstöð eða eitthvað hefði gefið það út og mér finnst þetta ekki gott hjá henni. (Btw. ég er ekki asískur eða neitt þannig, finnst þetta bara óviðeiogandi frá einhverri svona stofnun, þetta er samt dálítið fyndið). Textabrot: Í afríku eru ljón, og í Kína eru grjón. Finnst ykkur þetta viðeigandi? EDIT: óviðeiogandi á að vera óviðeigandi.

Ripp, Rapp og Rupp. (9 álit)

í Húmor fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Las þennan í Dagskránni, og þá hló ég í fyrsta skipti að brandara þar. Hvernig urðu Ripp, Rapp og Rupp til? Með andardrætti =D
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok