Færðu borgað fyrir að taka til í ÞÍNU herbergi? Hvers konar foreldra átt þú nú eiginlega… Ég er sammála einhverjum hérna á undan, ég myndi fá samviskubit ef mamma og pabbi myndu borga allt fyrir mig. Þau borga samt flest, ökuskólann (ekki ökutímana), allan skólakostnað, og ég fæ bíl (reyndar bara því það borgar sig eiginlega ekki að selja hann, gamall bíll sem á ekki svo mikið eftir). Mér finnst það nóg, myndi líða eins og smábarni ef það væri ALLT borgað fyrir mig…