Ég er sammála Midnight hvað varðar öryggisstandardinn, þjálfun hjá Flugleiðum er í góðum farvegi og þrátt fyrir að tillögur til úrbóta séu fyrst að koma fram fyrir almenningi núna þá var strax farið að vinna í málunum eftir atvikið. Við höfum æft go-around úr eins mörgum aðstæðum og hægt er ásamt því að prófa (flest okkar) að herma eftir þessum aðstæðum sem Gardermoen flugmennirnir lentu í. Að öðrum leyti verð ég að segja að kassinn er enginn dans á rósum, ég svitna a.m.k. hæfilega mikið...