Ég var eiginlega dauður þegar ég fór að sofa en vaknaði samt fyrir tilviljun næstum 6 klst eftir að ég sofnaði, ég las smá í einhverri í bók í kannski 30 minútur og testaði þetta svo. Þegar ég var búinn að slaka á öllum vöðvum og hugsaði um eitt ákveðið herbergi, þá fékk ég skrýtnustu tilfinningu sem ég hef fundið, það kom eins og einhver rafstraumur í bylgjum í allan líkamann, það var kannski svolítið óþægilegt en samt þægilegt um leið. Svo stuttu eftir það þá vaknaði ég bara aftur og...