Ojj, þetta Sonor Giant-step er mesti sori sem til er! Það er ekki séns að ná 265bpm á þannig maskínu. Annar feitur ókostur er að maður getur ekki notað heel-toe tæknina á þetta. Ef maður nær heel-toe tækninni á hreint þá getur maður spilað miklu hraðar á venjulegan einfaldan pedal heldur en á þessu Sonor dóti.
Þú hefðir náttúrulega átt að spyrja nágranna fyrst hvort þeir gætu sætt sig við smá trommuslátt af og til. Ef ég væri þú þá myndi ég bara einangra betur, hengja t.d. einhverja feita mottu 5cm frá veggjunum, það einangrar mjög vel hef ég heyrt.
Ég man eftir því að þennan morgun var ég búinn eitthvað snemma í skólanum og fór útí Kringlu með 2 vinum mínum að gera eitthvað. Þegar við löbbum framhjá Símabúðinni þá sáum við fullt af fólki vera að horfa á einhver 9 sjónvörp, búðin var troðin út að dyrum. Við vissum ekkert hvað var að ske og kíktum inn. Þá sá ég hvers kyns var. Á þessum tíma átti ég heima 30 sek. frá kringlunni þannig ég sprettaði heim og kveikti á kassanum og horfði á þetta furðulostinn allan daginn.
Nei takk. Ég er ekki að nenna að gera úrdrátt úr öllu því sem ég veit um kommúnisma. Ef þú værir í raun kommúnisti þá væri engin leið fyrir þig til þess að þrífast í jafn kapítalísku þjóðfélagi og við búum í.
Ég þoli ekki alla krakka sem þykjast vera rosa kommúnistar í sínum Che Guevara bolum og með red star kommúnisma töskur. Svo vita þau ekkert útá hvað kommúnismi gengur og hver Che Guevara er!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..