Ég vinn á lager hjá stóru fyritæki, og þegar vörur eru pantaðar frá erlendum birgja þá er frekar dodgy hvenær þær koma, því eins og einhver sagði hér fyrir ofan þá geta þessi stóru fyrirtæki úti alveg seinkað sendingu eins og þeim sýnist. Svo er líka það að þótt svo að varan sé kominn til landsins á enn eftir að leisa hana úr tolli…og það getur tekið sinn tíma. Þess vegna 1 - 3 mánuði, þannig að það þarf að sýna smá þolinmæði þegar maður er að bíða eftir vöru erlendis frá gegnum fyrirtæki....