Jæja kundera. Já, ég sagði að það væru engin sérstaklega góð rök fyrir því að leyfa áfengi frekar en eitthvað annað fíkniefni. Það er að segja, ef öll fíkniefni væru ólögleg og það væri ákveðið að leyfa tvö þeirra núna, þá er ekkert gefið að áfengi og tóbak yrðu fyrir valinu. Punkturinn var hins vegar að það er frekar hæpið að reyna að bera önnur fíkniefni saman við áfengi og lögleiða allt sem gæti verið skaðminna. Það sem gæti hugsanlega flotið með í þeim pakka eru kannabisefni, khat og...