hmm… mér finnst ekki nógu mikil örvænting. Hann er næstum bara pirraður á svipinn. Æj, ég veit ekki, ég varð fyrir smá vonbrigðum með hann Severus okkar. Kannski af því að ég var búin að giska á þetta allt saman áður en ég las bókina, löngu áður en hún kom út, áður en Half Blood Prince kom út… eins og þú veist. Allt nema að þau Lily hefðu þekkst fyrir Hogwarts. Ég átti von á einhverju meira frá honum, einhverju sem mér hafði ekki dottið í hug. En ég held ekki að bókin hefði verið neitt betri...