Takk ;P Það væri gaman, en ég er bara svo hryllilega léleg í svona “evil plotting”. Gengur ágætlega þegar Rowling er búin að gera mesta vinnuna fyrir mig ;P En annars finnst mér þetta ótrúlega gaman, jafnvel skemmtilegra en að lesa bækurnar. Hérna ræð ég næstum öllu sem gerist en veit það samt ekki endilega fyrirfram. Jú, ég er búin að gera grind og setja niður í nokkrum orðum hvað á að gerast í öllum köflunum, en svo þegar ég byrja að skrifa þá bara tekur sagan af mér öll völd og spinnur...