Það var mikið um dýrðir í eldhúsinu í Hroðagerði þetta kvöld. Eldhúsborðið svignaði undan kræsingum af ýmsu tagi. Harry hafði aldrei á sinni ævi séð annað eins veisluborð. Þetta sló jafnvel Hogwarts veislurnar út. Á borðinu mátti finna allskyns gómsæta rétti af öllu tagi bæði forrétti, eftirrétti og aðalrétt. Þar gaf að líta krabbakjöt, rækjur, graflax, snigla, grillaða sveppi, grillsteikur á stærð við hjólbarða, kartöflur af öllu tagi, grænmeti og hvert það meðlæti sem hægt var að hugsa...