Ég er mjög sammála þér með það að þessi gaur er einfaldlega ekkert spes trommuleikari en … “það virðist vera regla meðal trommara því fleiri symbalar,því minni talent”. Fyrirgefðu, en ég gat ekki annað en sett út á þetta. Þetta er alrangt. :) Tjekkaðu á manni sem heitir Terry Bozzio ef þú vilt marga cymbala og nóg af hæfileikum. Þú hefur kannski heyrt um hann … með frægustu trommuleikurum allra tíma. :)
Ég sé ekkert spurningarmerki. Spurning um að fara að mæta í íslenskutímana þína og læra að skrifa rétt. Allavega er ég farinn, ekki mikill tilgangur í því að spjalla við einstakling á netinu sem hegðar sér eins og versta barn.
Nei, þeir eru ekki margir. Ég stend dálítið upp úr hvað það varðar. Hinsvegar hvað þig varðar, þá hefur verið send beiðni um bann á kennitölunni þinni hérna á Huga. Reyndu nú að læra af mistökum þínum, félagi.
Af hverju heldurðu að þeir séu að skíta yfir ykkur? Það er einungis ein ástæða fyrir því. Fólk er komið með upp í kok af ykkur tveimur útaf hegðun ykkar hérna. Ég nenni ekki að tala um þetta við þig núna, er búinn að skrifa nóg til admina í kvöld, vertu sæll.
Ef þú heldur það þá ertu ekki að draga réttar ályktanir. Þú ert með óþarfa leiðindi og margt fólk er komið með leið á þér, þar af leiðandi sagði ég að þú værir á hálum ís. Ég er búinn að gera stjórnendum viðvart hvað varðar hegðun Spirited hérna á þessu áhugamáli og ekki halda að ég hiki eina sekúntu við að gera það sama í þínu máli. Óþarfa leiðindi og sóðakjaftur með meira er eitthvað sem þetta áhugamál þarf ekki. Það er alveg hægt að tala saman eins og menn þótt að fólk sé ekki endilega...
Ég ætla að tala við admin hér á /blizzard um að gera eitthvað í þessu varðandi pláguna þig. Þeir hljóta að vera með einhver sæt uppátæki fyrir börn eins og þig.
Það er satt að þá sé það komið, en kannski hef ég ekki séð linkinn. Kannski vissi ég ekki að þú vissir þetta fyrirfram. Þá áttirðu bara að vera þakklátur fyrir þessar aukaupplýsingar sem ég eyddi tíma í til að reyna að upplýsa þig betur og þar af leiðandi að gera gott verk. Ég þarf ekki að láta fólk segja mér að ég sé seinn í því etc. því ég er ekki beint að kíkja á alla helv. pósta í heiminum og skoða alla urla etc.
Ég er búinn að skoða linkinn. Hinsvegar er ekki búið að segja það beint hérna á þessum þræði, einungis búið að gefa link á upplýsingarnar. Næst þegar þú ætlar að vera smartass, vertu þá alveg viss í þinni sök.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..