Jæja, ég veit ekki alveg með ykkur en ég lét sjá mig á B+Q+S tónleikunum sem að fyrir þá sem ekki vita voru haldnir í háskólabíó þar sem Botnleðja, Quarashi og Sinfóníu Hljómsveit Íslands spiluðu saman. Á þessum tónleikum skemmti ég mér alveg snilldarlega enda var öll tónlistin vel útfærð og allir að gera sitt besta. Ein hugsun hefur þó staðið illa í mér í langann tíma, ég tók nefnilega eftir því að salurinn var fylltur af alls konar upptökugræjum og alls konar búnaði sem að notaður er við...