“Þú ættir að slaka á, ég heiti Mjöðmundur og þú ert í kofanum mínum.” sagði Mjöðmundur. “Hvað gerðist… AHHH SKRÍMSLIÐ ÞAÐ KEMUR AFTUR” öskraði hún. Mjöðmundur greip um axlir hennar og sagði rólega: “Svona, svona þú ert örugg hér, slakaðu á og drekktu þetta” Hann rétti henni volgan seyð í trébolla. Hún saup af seyðinum sem gaf frá sér af og til lítil hvissandi hljóð. Hún teygði sig í sárið, en Mjöðmundur stoppaði hana. “Það er best að láta það vera, þig klæjar kannski svolítið í það en það...