Ég heyrði einu sinni að brjóstahaldarar hefðu verið fundnir upp af manni sem var að reyna að finna upp lækningu við gulu. Ég sel það nú ekki dýrara en ég keypti það.
Fólk hefur mismunandi merkingar fyrir orðið “hata”. Sumir hata sjoppuafgreipslumanninn sem setti sinnepið ofan á pylsuna en ekki undir hana. Aðrir vilja nú ekki ganga svo langt að “hata” manninn sem batt hundinn þeirra fyrir aftan bíl og keyrði honum út í Hvalfjörð til að sofa hjá konunni þeirra, þó svo þeim “líki illa við hann”
Kanabis virkar róandi og myndi því ekki hvetja fólk til afbrota. Og já, það er ekki ávanabindandi líkamlega séð og ef það væri löglegt þá er ólíklegt að fólk færi að brjóta af sér til að eiga fyrir næsta fixi.
Ef þú býrð til þráð verðuru mjög líklega stimplaður sem deuche, þannig er það bara. Já fólk bregst afar illa við þegar einhverjum líkar ekki eitthvað sem það elskar. En ef að eina ástæðin fyrir að þú kallar mig þetta er að “svona er það bara” er þá ekki spurning um að sleppa því bara þangað til ég gef þér raunverulega ástæðu? (til dæmis þessa ræðu)
Já það var augljóst að það var lögð mikil vinna í að skapa þennan heim. Kannski ef þeir gera fleiri myndir um þetta þá þróast hann betur og verður svona svipað og Middle Earth eða Star Wars heimurinn. Annars eitt sem pirraði mig svolítið (gerir það reyndar alltaf í svona myndum og er kannski asnalegt) er að þetta geim fólk sem á að búa lengst í burtu alveg höfðu alveg sömu svona basic siði og við.
Hvenær sagði ég að ég væri eitthvað klár eða aðrir fífl? Hvenæ gaf ég það einusinni í skyn? Ég vara bara að segja að ég skildi ekki dýrkunina á þessari mynd. Ég skil ekki svona “high art” málverk og svoleiðis heldur en mér finnst fólkið sem hefur gaman að slíku ekki fífl.
Já þú ert illa að misskilja, ekki aðeins þetta heldur lífið í heild sinni ef þú heldur að morð eigi einu sinni eitthvað skillt við notkun kanabisefna. Ég er að segja að þetta sé voða lítið skaðlegt og það sé einungis skaðlegt sjálfum þér en ekki öðrum og því sé ástæðulaust að henda fólki í steininn fyrir það. Auðvitað þarf maður að dúsa í fangelsi ef maður brýtur lögin Þú ert semsagt ein af þessum manneskjum sem dettur ekki í hug að lögin séu eitthvað illa hönnuð eða eitthvað vitlaust við...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..